|
|
|
|
TÓNLISTARVINIR JGJ
|
|
|
|
|
|
|
|
FRÉTTABRÉF JÚLÍ 2010
JohannG In English Í fréttabréfi í febrúar sl. kynnti ég væntanlega tónlistarútgáfu sem ég væri að vinna að; tvöfalt albúm “JohannG In English.” Heildarupplag er 2000 eintök og 200 þeirra verða tölusett og árituð. Mjög er vandað til þessa grips sem loksins er kominn í framleiðslu en fyrirhugaður útgáfudagur er 20 júlí. Hér getið þið skoðað textabókina og kóverið hér . Þarna eru allar upplýsingar um útgáfuna; fjöldi laga, flytjenda, textar og fróðleg skrif sem Jónatan Garðarsson sá um. Lögin í fullri getið þið heyrt hér (klikkið á view).
Ég bið ykkur sem tókuð strax tilboðinu mínu í febrúar að afsaka hversu langan tíma þetta hefur tekið en vona að ykkur þyki biðin vera þess virði þegar þið fáið ykkar tölusetta og áritaða eintak í hendur ;-) Sum ykkar borguðu kr. 2000 innborgun – eftirstöðvar kr. 2000. Um leið geri ég tilboðið ykkur enn hagstæðara – sem gildir þá jafnframt fyrir þá sem panta á næstunni.
JohannG In English – júlí tilboð 2010 Tölusett og áritað upplag 200 eintök - eintakið kostar kr. 4000. Sendingarkostnaður er innifalinn + geislaplatan Gullinn sax- instrumental/Hallór Pálsson (skoða kóver hér) – leikur lög JGJ (hlusta hér), fylgir með sem gjöf með þökk fyrir viðskiptin. Þið leggið inn kr. 4000 á reikninginn minn, setjið netfangið mitt í kvittun í tölvupósti og JohannG sem skýringu. Þá sé ég hver greiðandinn er; nafn og heimilisfang, og get sent fljótlega lykilnúmer til að hlaða tónlistinni niður en verið er að ganga frá uppsetningu!
Reikningsnúmer: 101 – 05 – 180625 Eigandi Jóhann G. Jóhannsson Kt. 220247 – 4499 Setja jog@heimsnet.is í „Kvittun í tölvupósti“ ATH setja inn heimilsfang kaupanda. Setja JohannG In English í „Skýringu“
Með kærri kveðju, JóhannG
Ath. Þið sem gangið frá tilboðinu á www.johanng.is veljið Tónlistarvinir. Ps. Endilega áfram sendið fréttabréfið á vini og vandamenn sem kunna að hafa áhuga á tilboðinu. |
|
|
|
|
Jóhann G á Facebook | Í tilefni sextugs afmælis síns hefur Jóhann G ákveðið að gera árið 2007 að tónlistarári og er hann þegar byrjaður að vinna að geislaplötu sem kemur út næsta haust. Hægt verður að nokkru leyti að fylgjast með gerð og þróun fyrirhugaðrar tónlistarútgáfu á þessari heimasíðu.
Undir Tónlistarsjóður er boðið upp á ákveðna möguleika fyrir þá sem vilja styðja tónlistarútgáfu Jóhanns og tryggja sér fyrirfram árituð eintök af geislaplötunni (sjá Samstarfsfélagi og Bakhjarl.) Beint samband við JóhannG: netf.: jog@heimsnet.is Heimasími: 562 8689 Gsm: 697 6206.  |
|