Heim arrow Hálendi Íslands
Hálendi Íslands
Hálendi Íslands   Prenta  Senda 
SmelltuLandvernd stóð, ásamt Náttúruverndarsamtökum Íslands, Náttúruverndar- samtökum Suðurlands, Samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi, Náttúruvaktinni, Garðyrkjufélagi Íslands og Framtíðarlandinu, fyrir vinnslu á lagi og texta Jóhanns G. Jóhannssonar, „Hálendi Íslands“. Útsetningar og upptökustjórn annaðist Pétur Hjaltested.

Listamennirnir sem að verkinu komu voru, Ásgeir Óskarsson, Björgvin Gíslason, Pétur Hjaltested, Róbert Þóroddsson, Hörður Torfason, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Magnús Þór Sigmundsson, Ragnheiður Eiríksdóttir, Heiða Ólafsdóttir, Steindór Andersen og Jóhann G. Jóhannsson. Listamennirnir gáfu vinnu sína í þágu náttúruverndar. Landvernd kann þeim öllum bestu þakkir.

Öllum er heimilt að dreifa laginu svo fremi sem ekki sé tekin þóknun fyrir. Njótið vel

HLUSTA



HÁLENDI ÍSLANDS

Hálendi Ísland
Helgi mun missa
Er Hálslón færir landið þar á kaf

Gullkálfsins hringdans
Þar stjórnvöld stíga og kyssa
Lúkur auðhringa og slá þar hvergi af

Þau blekkingum beyttu
Til reiði landsmenn reittu
Er hið sanna komst í dagsins ljós

Aflsmunar neyttu
Staðreyndum í hag sér breyttu
Nú moka þurfa sitt eigið lygafjós

Út í heim var lagt af stað
Með gylltan betlistaf
Þar ýmsu lofað var
Því landið skyldi á kaf

En nú er fólk að vakna
Veit hvers er að sakna
Ef hálendi Íslands skal fórna fyrir hjóm

Það veit sem verður
Fyrir landið sem að hverfur
Komandi kynslóðir oss kveða þungan dóm

Verjum þetta land!

Hugleiðing Ferilskrá Ágrip Hafa samband
Jóhann G á Facebook | Í tilefni sextugs afmælis síns hefur Jóhann G ákveðið að gera árið 2007 að tónlistarári og er hann þegar byrjaður að vinna að geislaplötu sem kemur út næsta haust. Hægt verður að nokkru leyti að fylgjast með gerð og þróun fyrirhugaðrar tónlistarútgáfu á þessari heimasíðu.
Undir Tónlistarsjóður er boðið upp á ákveðna möguleika fyrir þá sem vilja styðja tónlistarútgáfu Jóhanns og tryggja sér fyrirfram árituð eintök af geislaplötunni (sjá Samstarfsfélagi og Bakhjarl.) Beint samband við JóhannG: netf.: jog@heimsnet.is Heimasími: 562 8689 Gsm: 697 6206.
Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun