Heim arrow Kærar þakkir!
Kærar þakkir!
Bergþóra Árnadóttir minning
Kærar þakkir!   Prenta  Senda 
Kæru vinir og allir aðrir sem glöddu mig með einum eða öðrum hætti í tilefni sextugs afmælisins.

Ég færi ykkur sérstakar þakkir fyrir hamingjuóskir, hlý orð í minn garð og stuðning við fyrirhugaða tónlistarútgáfu.

Sérstaka þakkir færi ég fyrir bein framlög í Tónlistarsjóðinn og til þeirra sem þegar hafa gerst bakhjarlar og samstarfsfélagar.

Eftir frábæra Kúbuferð er ég hress og endurnærður og til í slaginn að nýju. Ég ætla að gera Kúbuferðinni sérstök skil á næstunni í myndum og máli, m.a.

kynna fyrir ykkur kúbanskan vin minn, tónlistarmanninn Raydel, og leyfa ykkur að heyra tónlist hans. Ég mun í samsrafi við Netvistun halda uppbyggingu

heimasíðunnar áfram og fljótlega verður hægt að versla nokkuð af útgefnu efni mínum hér á síðunni undir Verslun. Afmælisveitingarnar, 10 lög af jafn mörgum

plötum, standa áfram til boða út afmælisárið og er hægt að niðurhala með því að fara inn á Lög. Ég hvet gesti til að notfæra sér það og láta aðra vita af þessum

möguleika. Svo vona ég að þið lítið við af og til og fylgist með þróuninni

Með hjartans þökk og kærri kveðju,

JóhannG

Hugleiðing Ferilskrá Ágrip Hafa samband
Jóhann G á Facebook | Í tilefni sextugs afmælis síns hefur Jóhann G ákveðið að gera árið 2007 að tónlistarári og er hann þegar byrjaður að vinna að geislaplötu sem kemur út næsta haust. Hægt verður að nokkru leyti að fylgjast með gerð og þróun fyrirhugaðrar tónlistarútgáfu á þessari heimasíðu.
Undir Tónlistarsjóður er boðið upp á ákveðna möguleika fyrir þá sem vilja styðja tónlistarútgáfu Jóhanns og tryggja sér fyrirfram árituð eintök af geislaplötunni (sjá Samstarfsfélagi og Bakhjarl.) Beint samband við JóhannG: netf.: jog@heimsnet.is Heimasími: 562 8689 Gsm: 697 6206.
Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun