Heim arrow Lög arrow Ferill arrow Afmælisávarp
Lög
Afmælisveitingar
Song of the Year
Ferill
TEXTAR. / LANGSPIL:
Útgáfur
Afmælisávarp
Hafa samband
Hugmyndabanki
Afmæliskveðjur
Lög sem tengjast málefnum
Nótnabók
Myndlist
Gullkorn
No need for goodbye
Afmælisávarp   Prenta  Senda 


Kæri gestur,

Nú er ég orðinn sextugur. Því fylgir óneitanlega dálítið undarleg tilfinning. Þegar ég heyrði í fyrsta sinn Paul McCartney syngja “When I´m sixty four” þá fannst mér það mjög finndið en pínu ógnvekjandi um leið, því að verða gamall er ekki eitthvað sem ungum rokkara finnst spennandi tilhugsun. Paul, vinur minn, varð svo 64 ára í fyrra og ég verð sextugur 22. febrúar næstkomandi. Já, tíminni hefur liðið býsna hratt! Að verða sextugur eru sérstök forréttindi í ljósi þess að meðalaldur jarðarbúa er mun lægri. Við hæfi er því að líta yfir farinn veg og spyrja sjálfan sig að því hvort maður sé sáttur við lífshlaup sitt. Ég get svarað því af einlægni játandi. En á þessum tímamótum, þegar ég hugsa um allt sem mér hefur veist í lífinu, þá er mér þakklæti efst í huga. Það eina sem er að hrella mig er að mér finnst ég allt of “ungur” til að verða sextugur. Ég á svo margt eftir ógert að 20 - 30 ár til viðbótar myndu varla duga til að koma öllu í framkvæmd sem mig langar til að gera. Við því er bara eitt ráð; að spýta í lófana, bretta upp ermarnar og hefjast handa. Ég hef heyrt þá segja sem náð hafa þessum áfanga að lífið byrji fyrst um sextugt, en jafnan fundist það fáránleg fullyrðing. En svei mér þá – kannski er það málið!

Tónlistarár JóhannsG

Ég ætla að byrja á því að lýsa því yfir að afmælisárið verður helgað tónlistarsköpun. Og í stað þess að eyða fjármunum í að halda veislu byrja ég strax að vinna að gerð nýrrar geislaplötu sem á að koma út næsta haust. Þessa plötu langar mig til að vinna með aðstoð þeirra sem áhuga hafa á að heyra nýtt efni frá mér. Því ætla ég að bjóða þér og þeim og sem heilsa upp á mig, með því að skoða heimasíðuna mína og skrifa jafnvel nokkur orð í gestabókina, að kynna sér hugmyndir mínar.

Tónlistarsjóður
Eftir mig liggur gríðar mikið af efni á kassettum og spólum sem sumt liggur undir skemmdum. Tónlistarsjóður er hugsaður til þess að standa straum af kostnaði við að koma þessu efni á aðgengilegt form, ásamt demóvinnslu og útgáfustarfsemi. Hægt er að ganga frá frjálsu framlagi með því að smella á Framlag. Styrktaraðilar verða skráðir bakhjarlar sjóðsins og þeirra getið við sérstök tækifæri.

Hugmyndir varðandi plötuútgáfu

Þeir sem þekkja eitthvað til tónlistar minnar eru hugsanlega til í ákveðið samstarf sem báðir aðilar geta haft hag og gaman af. Því geri ég þér og öðrum sem áhuga hafa ákveðið tilboð: Að kaupa 3 eintök af væntanlegri plötu á krónur 5000 (2 til jólagjafa.) Eintökin verða tölusett og árituð og óvæntur glaðningur mun fylgja hverjum pakka sem sendur verður viðkomandi eins og fljótt og auðið er að afstöðnum útgáfudegi. Fyrir næstu jól verða nokkur nöfn samstarfsfélaga dregin út og fá viðkomandi glaðing í formi myndlistar og tónlistar eftir undirritaðan. Með því að fara inn á Samstarfsfélagi getur þú gengið frá skráningu nú þegar. Fyrirtæki, sem vilja kynna sér tilboð til bakhjarla, geta gert það með því að fara inn á Bakhjarl.

Vinnsluferli plötunnar

Ég byrja á demóvinnslu laga sem til greina koma á plötuna í samvinnu við vin minn, Pétur Hjaltested. Á ákveðnum tímapunkti mun ég gefa þér og öðrum samstarfsfélögum, kost á að hlusta á demóin, lesa textana og velja lög sem viðkomandi telur best. Ég mun, við endanlegt val laga, taka mið af áliti samstarfsfélaga. Þar sem demó-útgáfa af lagi gefur stundum litla hugmynd um hvernig það mun hljóma að lokum gefst til gamans og fróðleiks kostur á að hlusta á nokkur demo af þekktum lögum mínum.

Jóhanng.is/ Heimasíða

Í samvinnu við Netvistun verður þessi heimasíða þróuð markvist áfram til að auðvelda öllum sem áhuga hafa á tónlist minni og myndlist að skipta við mig milliliðalaust og njóta bestu kjara og sérstakra tilboða. Ég hlakka til að vera í beinum samskiptum við þig og vona að þú gefir þér tíma til að kynna þér þá möguleika sem heimasíða mín býður þegar upp á og njótir veitinga sem eru í boði ( undir Tónlistarsjóður.) Þakka þér fyrir innlitið.

Með kærri kveðju,



Hugleiðing Ferilskrá Ágrip Hafa samband
Jóhann G á Facebook | Í tilefni sextugs afmælis síns hefur Jóhann G ákveðið að gera árið 2007 að tónlistarári og er hann þegar byrjaður að vinna að geislaplötu sem kemur út næsta haust. Hægt verður að nokkru leyti að fylgjast með gerð og þróun fyrirhugaðrar tónlistarútgáfu á þessari heimasíðu.
Undir Tónlistarsjóður er boðið upp á ákveðna möguleika fyrir þá sem vilja styðja tónlistarútgáfu Jóhanns og tryggja sér fyrirfram árituð eintök af geislaplötunni (sjá Samstarfsfélagi og Bakhjarl.) Beint samband við JóhannG: netf.: jog@heimsnet.is Heimasími: 562 8689 Gsm: 697 6206.
Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun